Kleifar Tjaldsvæði/Camping |
|
Færslur: 2013 Júní27.06.2013 02:18Sönghátíð á Kirkjubæjarklaustri!Verið velkomin á Sönghátíð á Kirkjubæjarklaustri! Listamenn: Gissur Páll Gissurarson, tenór Kvennakórinn Vox Feminae, stjórnandi: Margrét J. Pálmadóttir Anna Guðný Guðmundsdóttir, píanó Francisco Javier Jáuregui, gítar Bára Grímsdóttir, staðartónskáld Elfa Lilja Gísladóttir, stjórnandi tónlistarsmiðju fyrir börn Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir, mezzósópran og listrænn stjórnandi Tónleikar: Föstudagur 28.6. kl. 21:00 - Lútulög og ástarjátningar Gissur Páll Gissurarson, tenór, Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir, mezzósópran, Francisco Javier Jáuregui, gítar og Anna Guðný Guðmundsdóttir, píanó. Lútulög eftir John Dowland og rómantísk ensk sönglög frá fyrri hluta 19. aldar. Laugardagur 29.6. kl. 17:00 - Dagar í túni - íslensk kórtónlist. Kvennakórinn Vox Feminae, stjórnandi: Margrét J. Pálmadóttir. Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir, mezzósópran. Frumflutningur á nýju verki fyrir kvennakór og mezzósópran sem Bára Grímsdóttir hefur samið sérstaklega fyrir hátíðina: Dame la mano (Gabriela Mistral) Sunnudagur 30.6. kl. 15:00 - Lokatónleikar Kvennakórinn Vox Feminae, stjórnandi: Margrét J. Pálmadóttir. Gissur Páll Gissurarson, tenór, Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir, mezzósópran, Franciso Javier Jáuregui, gítar, Anna Guðný Guðmundsdóttir, píanó, börn úr Tónlistarsmiðju hátíðarinnar undir stjórn Elfu Lilju Gísladóttur. Verk eftir Rossini, Donizetti og Bellini. TÓNLISTARSMIÐJA FYRIR 5-10 ÁRA BÖRN: Kammertónleikar á Kirkjubæjarklaustri standa nú í fyrsta skipti fyrir spennandi og menntandi tónlistarsmiðju fyrir börn á aldrinum 5-10 ára helgina 29. til 30. júní. Börnin munu fara í tónlistarleiki, spinna og taka svo þátt í tónleikum með tónlistarmönnum Kammertónleika á Kirkjubæjarklaustri sunnudaginn 30. júní. Stjórnandi tónlistarsmiðjunnar er Elfa Lilja Gísladóttir tónlistarkennari. Í þessari tónlistarsmiðju mun hún blanda saman tónlist, leiklist, söng og dansi á skemmtilegan hátt. Börnin æfa og setja upp lítinn söngleik þar sem unnið er þvert á listgreinar og hugmyndir barnanna fá að blómstra. Þátttaka í tónlistarsmiðjunni er ókeypis. Kammertónleikar á Kirkjubæjarklaustri standa nú í fyrsta skipti fyrir spennandi, menntandi og skemmtilegri tónlistarsmiðju fyrir börn á aldrinum 5-10 ára helgina 29. til 30. júní. Börnin munu fara í tónlistarleiki, spinna og taka svo þátt í tónleikum með tónlistarmönnum Kammertónleika á Kirkjubæjarklaustri sunnudaginn 30. júní. Dagskrá tónlistarsmiðjunnar: Laugardagur 29.6. 2013 10:00-12:00 og 14:00-16:00 Sunnudagur 30.6. 2013 11:00-13:00 og 14:30-15:00 (upphitun fyrir tónleika). 15:00 Tónleikar á Kammertónleikum á Kirkjubæjarklaustri í félagsheimilinu Kirkjuhvoli. Stjórnandi tónlistarsmiðjunnar er Elfa Lilja Gísladóttir tónlistarkennari. Elfa Lilja hefur kennt ólíkum hópum tónlist síðustu ár í Kramhúsinu, og við tónlistar-, leik- og grunnskóla. Hún hefur gefið út námsefni í tónlist og hreyfingu Hring eftir hring og haldið námskeið og flutt fyrirlestra um tónlistaruppeldi barna. Í þessari tónlistarsmiðju mun hún blanda saman tónlist, leiklist, söng og dansi á skemmtilegan hátt. Börnin æfa og setja upp lítinn söngleik þar sem unnið er þvert á listgreinar og hugmyndir barnanna fá að blómstra. Þátttaka í tónlistarsmiðjunni er ókeypis. Allir eru hjartanlega velkomnir. Skráning fer fram hjá Rannveigu Bjarnadóttur í netfanginu kammertonleikar@gmail.com og í síma 865 7387. Vinsamlegast athugið að miðað er við að börnin taki þátt í námskeiðinu allan tímann. www.kammertonleikar.is Skrifað af Gunna 22.06.2013 19:20SKAFTÁRSTOFA - Upplýsingamiðstöð ferðamanna KirkjubæjarklaustriSKAFTÁRSTOFA - Upplýsingamiðstöð ferðamanna Kirkjubæjarklaustri Upplýsingamiðstöð ferðamanna er staðsett í Félagsheimilinu Kirkjuhvoli á
Kirkjubæjarklaustri og er opin frá 1. júní til 15.september.
Upplýsingamiðstöðin er rekin af Skaftárhreppi í samstarfi við
Vatnajökulsþjóðgarð, Kirkjubæjarstofu og Skaftárelda ehf. Opnunartímar
upplýsingamiðstöðvar 01. júní - 15. september : Alla daga
(mánudaga-sunnudaga) kl. 10:00-19:00 nánari upplýsingar á info@klaustur.is Sími 487-4620 Umsjónarmaður
sumarið 2013: Skrifað af Gunna 11.06.2013 21:23Kammertónleikar á KirkjubæjarklaustriSönghátíð og tónlistarsmiðja fyrir börn 28. - 30. júní 2013 Kammertónleikar
á Kirkjubæjarklaustri standa fyrir sönghátíð og tónlistarsmiðju fyrir börn
helgina 28. til 30. júní 2013. Kvennakórinn Vox Feminae ,
undir stjórn Margrétar J. Pálmadóttur, heldur upp á sitt tuttugasta
starfsár í ár og mun flytja á hátíðinni íslenska efnisskrá undir heitinu Dagar
í túni. Bára Grímsdóttir hefur samið nýtt verk fyrir kórinn og
mezzósópransöngkonuna Guðrúnu Jóhönnu Ólafsdóttur, sem jafnframt er
listrænn stjórnandi hátíðarinnar. Tenórsöngvarinn Gissur Páll Gissurarson,
sem hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin sem Söngvari ársins nýverið, mun
flytja ítalskar perlur eftir Bellini með Önnu Guðnýju Guðmundsdóttir píanóleikara
og undurfögur sönglög frá endurreisnartímanum eftir John Dowland við
gítarundirleik SpánverjansFrancisco Javier Jáuregui. Guðrún og Javier
munu einnig flytja ensk lög frá fyrri hluta nítjándu aldar, sem voru að koma út
með þeim á geisladiski á vegum spænska útgáfufyrirtækisins EMEC. Elfa
Lilja Gísladóttir mun leiða 5-10 ára börn í tónlistarsmiðju og munu
þau koma fram á tónleikum með tónlistarmönnum hátíðarinnar. Tónleikarnir verða
föstudaginn 28.6. kl. 21:00, laugardaginn 29.6. kl. 17:00 og sunnudaginn 30.6.
kl. 15:00 í Kirkjuhvoli á Kirkjubæjarklaustri. Miðapantanir og skráning í
tónlistarsmiðju fer fram í netfanginukammertonleikar@gmail.com Nánari upplýsingar má finna á
vefnumwww.kammertonleikar.is TÓNLEIKAR: Föstudagur 28.6. kl.
21:00. Flow, my tears - Ensk sönglög frá endurreisn til rómantíkur Gissur Páll Gissurarson, tenór, Guðrún
Jóhanna Ólafsdóttir, mezzósópran, Franciso Javier Jáuregui, gítar og Anna Guðný
Guðmundsdóttir, píanó. Laugardagur
29.6. kl. 17:00. Dagar í túni - íslensk kórtónlist Kvennakórinn Vox Feminae, stjórnandi:
Margrét J. Pálmadóttir. Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir, mezzósópran, Anna Guðný
Guðmundsdóttir, píanó. Frumflutningur á verki fyrir kvennakór og
mezzósópran eftir Báru Grímsdóttur. Sunnudagur 30.6. kl.
15:00 Bel canto og tónlistarbörn Lokatónleikar. Kvennakórinn Vox Feminae,
stjórnandi: Margrét J. Pálmadóttir. Gissur Páll Gissurarson, tenór, Guðrún
Jóhanna Ólafsdóttir, mezzósópran, Franciso Javier Jáuregui, gítar, Anna Guðný
Guðmundsdóttir, píanó, börn úr Tónlistarsmiðju Kammertónleika á
Kirkjubæjarklaustri undir stjórn Elfu Lilju Gísladóttur. TÓNLISTARSMIÐJA FYRIR
BÖRN 5-10 ára: skráning á info@klaustur.is. Laugardagur 29.6. 10:00-12:00 og 14:00-16:00 Sunnudagur 30.6. 11:00-13:00 og 14:30-15:00. 15:00 Tónleikar LISTAMENN: Kvennakórinn Vox Feminae, stjórnandi:
Margrét J. Pálmadóttir Gissur Páll Gissurarson, tenór Franciso Javier Jáuregui, gítar Anna Guðný Guðmundsdóttir, píanó Bára Grímsdóttir, staðartónskáld Elfa Lilja Gísladóttir, stjórnandi
tónlistarsmiðju fyrir börn Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir, mezzósópran og
listrænn stjórnandi Staðsetning: Félagsheimilið Kirkjuhvoll, Klausturvegi,
Kirkjubæjarklaustri, Skaftárhreppi. Miðasala Miðaverð:
3.500 kr. á staka tónleika, 6.000 kr. á tvenna tónleika og 8.500 kr. á þrenna.
Eldri borgarar: 3.000 kr. á staka tónleika, 5.500 kr. á tvenna tónleika og
7.500 kr. á þrenna. Þátttaka
í tónlistarsmiðju fyrir börn er ókeypis. Hótel og gististaðir á og í nágrenni Klausturs bjóða
gestum hátíðarinnar upp á gistingu og fæði í ýmsum verðflokkum. Um það má fá
upplýsingar í Upplýsingamiðstöð ferðamála á Klaustri í síma 487-4620 á síðunniwww.klaustur.is eða í netfanginu info@klaustur.is Nánari
upplýsingar um tónleikana veitir Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir, listrænn
stjórnandi hátíðarinnar, í netfanginukammertonleikar@gmail.com Tenglar: Kvennakórinn
Vox Feminae: http://www.voxfeminae.is/ Gissur Páll Gissurarson:http://www.tonlist.is/Music/Artist/403807/gissur_pall_gissurarson/ John
Barber: http://www.johnbarbermusic.com/ Guðrún
Jóhanna Ólafsdóttir: www.gudrunolafsdottir.com Francisco
Javier Jáuregui: www.javierjauregui.com Klausturhof
Kirkjubæjarklaustri Skrifað af Gunna 11.06.2013 21:2217. júní 201317. júní 2013 Kæru Skaftfellingar komum og höfum gaman saman.
Kl:13:00 Skrúðganga. (blöðrur verða seldar
við Systrakaffi.) Kl:13:30 Bílasýning á plani skólans, Kl:14:15 Leikir á lóð skólans, Kl:15:00 Verða til sölu grillaðar pylsur Kl:15:30 Nunnur Ármanns og Munkar Ármanns Kl:16:00 Kaffi í félagsheimilinu Auður og Vignir í
Systrakaffi verða með gefins ís fyrir börn 12 ára og yngri í Skaftárskála. Kveðja, 17.
júní-ráðið. Ef áhugi er fyrir að sýna bíl eða annað
vélknúið tæki á sýningunni hafið samband við Jóhann Gunnar s. 867-0655 eða
Gunnar Pétur s. 847-7125 Skrifað af Gunna 11.06.2013 21:20Hátíðarmessa LangholtskirkjuHátíðarmessa
sunnudaginn 16. júní 2013 Langholtskirkja í
Meðallandi 150 ára Langholtskirkja í Meðallandi, sem var reist á árunum
1862-63 og afhent Langholtssöfnuði 14. des 1863, á 150 ára afmæli á þessu ári. Af því tilefni fer
fram hátíðar- og afmælismessa í kirkjunni sunnudaginn 16. júní nk kl.13. Biskup Íslands frú
Agnes M. Sigurðardóttir prédikar. Séra Kristján Valur Ingólfsson vígslubiskup
og séra Halldóra Þorvarðardóttir prófastur þjóna til altaris ásamt séra Ingólfi
Hartvigssyni sóknarpresti. Ásakórinn og kirkjukór Prestsbakkakirkju leiða söng
undir stjórn Brians
Røgers C. Haroldssonar organista Langholtssóknar Eftir messuna verður boðið til kirkju- og afmæliskaffis á Hótel Laka í
Efri-Vík. Sóknarnefnd og
sóknarprestur. Skrifað af Gunna
Flettingar í dag: 165 Gestir í dag: 47 Flettingar í gær: 207 Gestir í gær: 67 Samtals flettingar: 658345 Samtals gestir: 131541 Tölur uppfærðar: 10.4.2021 15:07:01 |
Eldra efni Tjaldsvæði Nafn: KleifarFarsími: 8617546Tölvupóstfang: kleifar68@simnet.isHeimilisfang: Geirlandsvegur (Mörk)Staðsetning: KirkjubæjarklausturHeimasími: 4874675Um: Tjaldsvæðið Kleifar stendur við Geirlandsveg 2,5km. frá Kirkjubæjarklaustri. Við tjaldsvæðið er fallegur foss sem heitir Stjórnarfoss og á góðviðrisdögum verður vatnið í Stjórninni svo heitt að hægt er að fá sér sundsprett. Á tjaldsvæðinu eru tvö vatnssalerni og kalt rennandi vatn, bekkir og borð. Stutt er á Kirkjubæjarklaustur þar sem hægt er að komast í matvöruverslun, veitingastaði og sundlaug svo eitthvað sé nefnt.Tenglar
|
© 2021 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is